SIÐAREGLUR ICOM
FAGLEGT STARF Í HVÍVETNA
Siðareglur ICOM fyrir söfn eru hornsteinn samtakanna. Í reglum þessum er kveðið á um lágmarksstaðal fyrir starfsemi og starfshætti safna og starfsliðs þeirra. Með inngöngu í samtökin gangast félagar ICOM við að fara eftir siðareglum þessum. Mál sem kunna að eiga erindi við Siðareglunefnd ICOM má senda formanni nefndarinnar á netfangið ethics@icom.museum
Starfssiðareglur ICOM voru samþykktar einróma á 15. allsherjarþingi ICOM í Buenos Aires í Argentínu árið 1986. Á 20. allsherjarþingi samtakanna í Barcelona á Spáni árið 2001 voru samþykktar á þeim breytingar og titlinum breytt í Siðareglur ICOM fyrir söfn. Reglurnar voru endurskoðaðar og núgildandi útgáfa samþykkt á allsherjarþingi ICOM í Seoul í Suður-Kóreu árið 2004.
ÚTGÁFA
Íslandsdeild ICOM hefur gefið út Siðareglur ICOM fyrir söfn á íslensku, auk námskeiðsefnis sem byggist á vinnubæklingi landsdeildar ICOM í Svíþjóð frá 2013, enda þótt ýmis dæmi séu stað- og stílfærð. Hægt er að fletta í gegnum hvorn bæklinginn fyrir sig í lesurunum hér fyrir neðan. Þá má jafnframt hlaða bæklingunum niður til eigin nota.
NÁMSKEIÐ
Íslandsdeild ICOM býður stofnunum og starfsfólki safna upp á námskeið um siðareglur Alþjóðaráðsins gegn greiðslu. Til þess að panta námskeið er bent á að hafa samband með því að senda tölvupóst á icom@icom.is.
Vinnuáætlun
Þátttakendur ættu að vera um 15-50. Þátttakendur geta verið allir frá sama safni eða komið af ólíkum söfnum. Fyrirfram þarf að skipuleggja með umsjónarmönnum hvernig skipt er í hópa, til dæmis þannig að samsvarandi starfsmannahópar á einu eða fleiri söfnum séu saman.
Námskeiðið hefst með kynningu á siðareglunum (sjá ofar) og er ætlast til þess að þátttakendur hafi lesið þær áður.
Meginhluti námskeiðsins felst í umræðum um dæmisögur sem finna má í sérútbúnu námskeiðsefni, fyrst í hópum, síðan allir saman. Í bæklingnum eru tuttugu dæmisögur og skiptast þær í þessa flokka:
- Miðlun og sýningar
- Safnkostur og söfnun
- Munirnir
- Starfsmenn
- Safnmenn á safninu sínu
Fyrirkomulag
- Hafið samband við Íslandsdeild ICOM og pantið námskeið: icom@icom.is.
- Námskeiðið er skipulagt með umsjónarmönnum, fjöldi hópa ákveðinn og athugað hvaða flokkar og dæmisögur eru áhugaverðastar fyrir þátttakendur.
Hér er tillaga um dagskrá námskeiðs sem tekur um það bil þrjár klukkustundir:
1. hluti (um 1 klukkutími)
- Almenn kynning á siðareglunum og gildi þeirra við úrlausnarefni í daglegu starfi.
- Þátttakendur skiptast í hópa sem hver fjallar um einn efnisflokk siðareglnanna.
2. hluti (um 1 klukkutími)
- Dæmisögurnar ræddar í hópum með siðareglur ICOM til hliðsjónar.
- Hver þátttakandi fær siðareglurnar og hefti með dæmisögum til að fjalla um. Viðfangsefni hópanna miðast við að komið sé inn á ólíka þætti í starfi safna en hóparnir þurfa einnig að geta valið sér dæmisögur til að fjalla um í samræmi við áhugasvið sitt.
- Hópurinn skipar ritara sem skráir athugasemdir um dæmin sem fjallað er um. Hægt er að bjóða hressingu á meðan á umræðum stendur.
3. hluti (um 1 klukkutími)
- Sameiginlegar umræður um niðurstöður hópanna.
- Niðurstöður og mat.
Í samráði við umsjónarmenn námskeiðsins er möguleiki að velja annað fyrirkomulag.