ÍSLANDSDEILD ICOM
SAGA OG
HLUTVERK
ICOM stendur fyrir International Council of Museums eða Alþjóðaráð safna. Það er samstarfsvettvangur safna og fagfólks safna, sem vinnur að því að varðveita, viðhalda og miðla til alþjóðasamfélagsins náttúru- og menningararfleið heimsins, huglægri sem hlutlægri, í samtíð sem framtíð.
ICOM eru frjáls félagasamtök sem hafa komið á fót faglegum viðmiðum og siðareglum fyrir safnastarfsemi, stuðlað að þjálfun og þekkingarsköpun, tekið á málefnum og aukið menningarvitund almennings í gegnum alþjóðlegt tengslanet og samstarf.
Íslandsdeild ICOM var stofnuð árið 1985 með það að markmiði að efla faglegt safnastarf á Íslandi og auka samskipti fagfólks safna hér á landi við starfsfélaga víða um heim. Þáttur í þeirri viðleitni er útgáfa siðareglna ICOM á íslensku, auk námskeiða sem Íslandsdeildin býður upp á til að kynna siðareglurnar fyrir félögum.
Stjórnarmeðlimir hafa á hverju ári tekið þátt í fundum samtakanna í París en þar eru höfuðstöðvar ICOM, nátengdar Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, og er ICOM ráðgefandi fyrir hana. Stjórnarmeðlimir hafa einnig tekið þátt í árlegum fundum ICOM Nord, svæðissamtökum Norðurlandanna.
STJÓRN ÍSLANDSDEILDAR
Guðný Dóra Gestsdóttir
Formaður
Ólöf Gerður Sigfúsdóttir
Ritari
Anna Friðbertsdóttir
Gjaldkeri
Sigurður Trausti Traustason
Meðstjórnandi
Hólmar Hólm
Meðstjórnandi
FULLTRÚAR
ÍSLANDSDEILDAR ICOM
Íslandsdeild ICOM tilnefnir fulltrúa í ákveðin samtök, ráð og nefndir, líkt og safnaráð og Bláa skjöldinn, eða stofnanir, svo sem Rannsóknasetur í safnafræðum við Háskóla Íslands. Þá á félagið fulltrúa í deildum, eins og ICOM Nord, auk þess að skipa nefndarmann í húsafriðunarnefnd, í samráði við ICOMOS og FÍSOS. Fulltrúar Íslandsdeildarinnar gegna mikilvægu hlutverki í þverfaglegu samstarfi og hagsmunabaráttu félagsins á innlendum og erlendum vettvangi.
Helga Lára Þorsteinsdóttir
Safnaráð
Anna Guðný Ásgeirsdóttir
Blái skjöldurinn
Ragnheiður Vignisdóttir
Rannsóknasetur í safnafræðum
Helga Maureen Gylfadóttir
Húsafriðunarnefnd