ALÞJÓÐARÁÐ SAFNA
STOFNUN OG STARFSEMI
Alþjóðaráð safna, ICOM (International Council of Museums), var stofnað árið 1946 og starfa samtökin í tengslum við UNESCO. Í samtökunum eru bæði söfn og safnafólk en tilgangur ICOM er að þróa og bæta söfn í heiminum með því að skapa fagleg viðmið og siðareglur fyrir safnastarfsemi. Samtökin stuðla að þjálfun og þekkingarsköpun og beita sér að auki fyrir framgangi hagsmunamála sem varða söfn og menningararf á heimsvísu með víðtæku samstarfi og alþjóðlegu tengslaneti.
Tengslanet ICOM á heimsvísu
>40.000
Söfn og safnmenn
122
Landsdeildir
32
Alþjóðlegar fagdeildir
DEILDIR ICOM
Starfsdeildir ICOM hafa aðkomu að málefnum Alþjóðaráðsins, jafnt á landsvísu sem heimsvísu, og hafa veigamiklu hlutverki að gegna við að efla samskipti á milli mismunandi hagsmunaaðila innan safnaheimsins, ákveðinna starfsstétta og safnafólks almennt.
Landsdeildir
Landsdeildir ICOM gæta hagsmuna safna og safnafólks í þeim löndum sem þær starfa. Landsdeildirnar eru í forsvari fyrir félagsmenn sína gagnvart yfirstjórn ICOM, auk þess að móta og miðla dagskrá og stefnumálum samtakanna, auk þess að sjá um framkvæmd Alþjóðlega safnadagsins hver í sínu landi. Þá er umsjón með félagatali og innheimta félagsgjalda á ábyrgð landsdeildanna.
Fagdeildir
Félögum ICOM stendur til boða að skrá sig í alþjóðlegar fagdeildir Alþjóðaráðs safna en hver um sig fæst við ákveðinn kima safnastarfsins, svo sem sýningarstjórn, forvörslu, safnfræðslu og margt fleira. Þar geta sérfræðingar rætt sín á milli um eigin áhugamál ekki síður en álitamál í faginu. Alþjóðlegar fagdeildir ICOM eru 32 talsins og því fátt sem er félögum óviðkomandi.
Svæðissamtök
Sex svæðissamtök starfa innan vébanda ICOM. Hlutverk svæðissamtakanna er fyrst og fremst að efla samstarf og auka upplýsingamiðlun á milli landsdeilda, safna og safnafólks innan ákveðins svæðis, með tilliti til pólitískra og landfræðilegra tengsla. Svæðissamtök eru starfrækt vítt og breitt um heiminn og jafnvel þvert á heimsálfur. Þá eru þrjú svæðissamtök starfandi í Evrópu.
SAFNASKILGREININGIN
Undanfarin ár hefur ICOM unnið að endurskoðun safnaskilgreiningar ráðsins með tilliti til breyttra tíma, aðstæðna og þeirra krafna sem gerðar eru til safna nútímans í víðtækum skilningi, auk þess að horfa fram á við með áskoranir framtíðarinnar í huga. Fastanefnd var skipuð til endurskoðunar skilgreiningarinnar í kjölfar allsherjarþings ICOM í Mílanó árið 2016 og ný tillaga að safnaskilgreiningu var lögð fyrir allsherjarþingið í Kýótó árið 2019. Þar var ákveðið að fresta kosningu um skilgreininguna, sem verður tekin upp að nýju á allsherjarþingi í Prag 2022, eftir frekara samráð. Núverandi skilgreining um það hvað safn er hljóðar svo:
„Safn er stofnun með fastan rekstur sem ekki er rekin í ágóðaskyni heldur til þjónustu við samfélagið og til framgangs þess, er opin almenningi og safnar, varðveitir, rannsakar, miðlar og sýnir – til skoðunar, menntunarauka eða ánægju – það sem til vitnis er um fólk og umhverfi þess, bæði áþreifanlegt og óáþreifanlegt.“
Skilgreining samþykkt á allsherjarþingi ICOM í Vín, Austurríki, 24. ágúst 2007.
ALLSHERJARÞING
Allsherjarþing ICOM eru haldin á þriggja ára fresti en fyrsta slíka þing Alþjóðaráðsins var haldið árið 1948. Á dagskránni eru ávörp leiðandi sérfræðinga og áhrifafólks í faginu, málstofur, pallborðsumræður og ýmsir aðrir viðburðir sem ætlað er að stuðla að auknum tengslum á milli félaga úr öllum áttum. Þá hefur hvert allsherjarþing yfirskrift sem tekin er til gagnrýnnar og greinandi umræðu á þinginu. 26. allsherjarþing ICOM mun fara fram í Prag dagana 20. til 28. ágúst 2022. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er Máttur safna (e. The Power of Museums).