FÉLAGSAÐILD
HVERS VEGNA AÐ GERAST FÉLAGI?
Með því að gerast félagi í ICOM verður þú þátttakandi í hinum alþjóðlega safnaheimi og hluti af virku tengslaneti 40.000 safna og safnmanna frá 141 landi. Hvort sem það er í gegnum einstaklings-, stúdenta- eða stofnanaaðild, veitir þátttakan þér aðgang að alþjóðadeildum og sívaxandi vettvangi fyrir skoðanaskipti, vísindalegt samstarf og umræðu um fortíð, nútíð og framtíð safna. Hægt er að fræðast nánar um ICOM á alþjóðlegri heimasíðu félagsins.
HVER ER ÁVINNINGURINN?
- Aðildarkort sem veitir afslátt og aðgang að söfnum á heimsvísu.
- Aðgangur að ráðstefnum ICOM og afsláttur af öðrum ráðstefnum sem haldnar eru í samstarfi við ICOM.
- Jafningjafræðsla, sí- og endurmenntun á vegum ICOM.
- Faglegar útgáfur og önnur sérfræðigögn.
HVERJIR GETA GENGIÐ Í FÉLAGIÐ?
- Faglegir núverandi starfsmenn safna og þeir sem eru komnir á eftirlaun.
- Sérfræðingar á sviði safnastarfs.
- Þeir sem fást við kaup og sölu á menningarverðmætum í hagnaðarskyni, þar með talin listaverk, náttúru- og vísindasýni, geta ekki gerst aðilar að ICOM.
- Stúdentar sem eru skráðir í nám á sviði safna.
- Stofnanir geta sótt um aðild ef þær uppfylla siðareglur ICOM.
HVERNIG Á AÐ SÆKJA UM AÐILD?
- Til að sækja um aðild skal byrja á að fylla út rafræna umsókn á alþjóðlegri heimasíðu félagsins.
- Stjórn Íslandsdeildar fjallar um umsóknina og sendir tilkynningu um samþykktar umsóknir áfram til höfuðstöðvanna í París.
- Greiðsluseðill vegna félagsgjalda er sendur til umsækjanda.
- Umsækjandi greiðir félagsgjöld og fær í kjölfarið félagskort (sem veitir m.a. aðgang að söfnum um allan heim og ráðstefnum á vegum félagsins), rétt til að sækja um styrki á vegum félagsins, auk fréttabréfs ICOM.
- Stjórn Íslandsdeildar sendir félagskort með ICOM-aðildarnúmeri til nýskráðs félaga um leið og þau berast frá höfuðstöðvunum í París.
- Þegar árlegt félagsgjald hefur verið greidd er límmiði með ártali sendur sendur nýjum félaga til staðfestingar um greiðslu og gilda aðild að félaginu.
- Félagsaðild gildir í eitt ár en miðað er við almanaksár.
- Límmiðar með uppfærðu ártali eru sendir út ár hvert eftir að greiðsla árlegra félagsgjalda hefur borist Íslandsdeild ICOM.
TEGUNDIR AÐILDAR OG FÉLAGSGJÖLD
Hægt er að sækja um þrenns konar félagsaðild: einstaklings-, stúdenta- og stofnanaaðild. Félagsgjald er ákvarðað af framkvæmdastjórn ICOM fyrir hverja þá tegund aðildar sem félögum standa til boða. Félagsgjald er staðfest á aðalfundi ár hvert.
Einstaklingsaðild
11.500 kr.
Stúdentaaðild
5.500 kr.
Stofnanaaðild
Sendið fyrirspurn á icom@icom.is