ÍSLANDSDEILD
ICOM
Íslandsdeild ICOM var stofnuð árið 1985 með það að markmiði að efla faglegt safnastarf á Íslandi.
Faglegt starf í þágu safna
og samfélags
ICOM stendur fyrir International Council of Museums eða Alþjóðaráð safna. Það er samstarfsvettvangur safna og fagfólks safna, sem vinnur að því að varðveita, viðhalda og miðla til alþjóðasamfélagsins náttúru- og menningararfleið heimsins, huglægri sem hlutlægri, í samtíð sem framtíð. ICOM eru frjáls félagasamtök sem hafa komið á fót faglegum viðmiðum og siðareglum fyrir safnastarfsemi, stuðlað að þjálfun og þekkingarsköpun, tekið á málefnum og aukið menningarvitund almennings í gegnum alþjóðlegt tengslanet og samstarf.
Íslandsdeild ICOM var stofnuð árið 1985 með það að markmiði að efla faglegt safnastarf á Íslandi og auka samskipti fagfólks safna hér á landi við starfsfélaga víða um heim. Þáttur í þeirri viðleitni er útgáfa siðareglna ICOM á íslensku, auk námskeiða sem Íslandsdeildin býður upp á til að kynna siðareglurnar fyrir félögum. Stjórnarmeðlimir hafa á hverju ári tekið þátt í fundum samtakanna í París en þar eru höfuðstöðvar ICOM, nátengdar Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, og er ICOM ráðgefandi fyrir hana.
FARSÆLT SAMSTARF
Íslandsdeild ICOM á í gjöfulu og farsælu samstarfi við ýmsar aðrar stofnanir á safnasviðinu hérlendis. Sameiginlegt markmið þessara hópa er að auka veg og vanda íslenskra safna með því að gangast fyrir faglegum viðmiðum og vinnubrögðum.
FÍSOS
Félag íslenskra safna og safnamanna var stofnað árið 1981 í þeim tilgangi að efla samstarf milli safna og safnmanna, fjalla um safnamál, auka þekkingu og fræðslu á söfnum og safnstörfum og annast samskipti við safnmenn og hliðstæð samtök erlendis.
Safnaráð
Safnaráð er stjórnsýslunefnd sem starfar eftir safnalögum en meginhlutverk þess er að hafa eftirlit með safnastarfsemi í landinu, vinna að stefnumörkun um safnastarf, fjalla um viðurkenningar safna og veita umsagnir um styrkumsóknir í safnasjóð.
Blái skjöldurinn
Markmið alþjóðasamtaka Bláa skjaldarins er að vernda menningarverðmæti þegar hættuástand skapast vegna náttúruhamfara og átaka, m.a. með áætlunum og viðbrögðum, þegar vá steðjar að, og stuðningi þegar hættuástandi lýkur.
Áhugaverð verkefni á vegum félagsins
Alþjóðlegi safnadagurinn
Dagurinn er haldinn hátíðlegur 18. maí ár hvert en Alþjóðaráð safna hefur staðið fyrir safnadeginum síðan 1977.
Íslensku safnaverðlaunin
Íslensku safnaverðlaunin eru veitt annað hvert ár í þeim tilgangi að vekja athygli á því sem vel er gert á íslenskum söfnum.